Stafræn markaðssetning

Vefnámskeið með Arnari Gunnarssyni

Um námskeiðið

Þekking á stafrænni markaðssetningu er orðin lykilfærni í nútíma markaðsstarfi. Á þessu námskeiði er meðal annars farið yfir:

  • Grunnatriði stafrænnar markaðssetningar: Helstu dreifileiðir, hvernig viðskiptavinir finna fyrirtæki á netinu og hvernig mismunandi rásir vinna saman.
  • Vefsíður og leitarvélar: Hvernig góð vefsíða styður markaðssetningu og hvernig leitarvélar virka.
  • Leitarvélabestun (SEO): Hvernig fyrirtæki auka sýnileika sinn í Google með réttri uppbyggingu efnis og vefsíðu.
  • Organískir miðlar: Hvernig efni, greinar og samfélagsmiðlar geta skapað dreifingu og byggt upp sýnileika til lengri tíma.
  • Meta Ads: Hvernig auglýsingakerfi Meta virkar og hvernig herferðir eru settar upp í Ads Manager.
  • Google Ads: Leitarauglýsingar, Display auglýsingar, YouTube og Performance Max.
  • Mælingar og gagnagreining: Hvernig árangur herferða er mældur og hvaða tölur skipta mestu máli.
  • Hagræðing og þróun: Hvernig þú bætir árangur markaðssetningar með tímanum og tekur betri ákvarðanir út frá gögnum.

Námskeiðið er kennt á netinu og þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig.

Skráning

Vefnámskeið með Arnari Gunnarssyni. Innifalið eru fyrirlestrar, innra net þar sem þú getur horft í öllum tækjum og skírteini þegar þú klárar.

Frá 19.900 kr. - sjá öll námskeið í boði

EÐA

Vissir þú að flest stéttarfélög endurgreiða stóran hluta námskeiðsgjaldsins? Sjá nánar hér.

Flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjöld Frama. Finndu þitt stéttarfélag hér að neðan



Kennarinn þinn

Arnar

Arnar býr yfir margra ára reynslu af Meta Ads, mælingum og árangursdrifinni stafrænni markaðssetningu. Hann hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum að því að hámarka árangur herferða, bæta nýtingu auglýsingafjár og byggja upp sjálfbæran vöxt með markvissri greiningu og stefnumótun.


Arnar er framkvæmdastjóri Caravan og sérhæfir sig í að tengja saman skapandi nálgun og gagnadrifna ákvarðanatöku. Í starfi sínu leggur hann áherslu á skýra markmiðasetningu, nákvæmar mælingar og stöðuga bestun herferða til að tryggja raunverulegan árangur fyrir viðskiptavini.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum sem:

  • vilja skilja stafræna markaðssetningu en vita ekki hvar á að byrja
  • vilja setja upp og stýra eigin markaðssetningu í stað þess að treysta alfarið á aðra
  • vinna í markaðsmálum og vilja styrkja færni sína í stafrænni markaðssetningu
  • reka fyrirtæki og vilja auka sýnileika, umferð á vef og sölu

Hvað mun ég læra?

Eftir námskeiðið munt þú skilja:

  • hvernig stafrænt markaðsumhverfi er byggt upp og mismunandi dreifileiðir virka saman
  • hvernig á að nota SEO og organíska miðla til að auka sýnileika á netinu
  • hvernig auglýsingar eru settar upp og stýrðar í Meta Ads og Google Ads
  • hvernig á að lesa niðurstöður og bæta árangur út frá gögnum

Efnistök

Skoðaðu hvaða fyrirlestrar og annað efni er innifalið í námskeiðinu

Grunnurinn í stafrænni markaðssetningu
Inngangur
3:21
Dreifileiðir í stafrænni markaðssetningu
16:02
Vefsíður og sýnileiki
Vefsíða
5:18
Leitarvélabestun (SEO)
5:21
Tæknilegt SEO
10:14
Organísk markaðssetning
Organískir miðlar
3:57
Meta Ads
Meta Ads
12:07
Herferðir, markmið og markhópar
15:35
Birtingarform
2:26
Gagnagreining
9:14
Google Ads
Google Ads og leitarorð
25:26
Display, Youtube og Performance Max
12:13
Setjum upp Google Search herferð
15:16
Mælingar og tölvupóstar
Mælingar í stafrænu umhverfi
13:43
Tölvupóstar
6:33
Könnun
Útskriftarskírteini

fyrirlestrar | aðstoð innifalin

Námskeiðið er kennt á netinu. Þú getur byrjað hvenær sem er.

Fáðu öll námskeiðin

Með því að skrá þig í áskrift færð þú ótakmarkaðan aðgang að öllum námskeiðum Frama. Auk þess færðu aðgang að nýjum námskeiðum um leið og þau koma út. Þú getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er.

Styrktu ferilskrána

Þegar þú hefur lokið við námskeiðið færðu útskriftarskírteini sem staðfestir það sem þú lærðir.

Þú getur notað skírteinið til þess að sýna núverandi eða verðandi vinnuveitanda þínum eða sett staðfestinguna á ferilskrána þína.

Spurt og svarað

Hvað er innifalið?
Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum sem þú færð aðgang að á nemendasvæði Frama. Þú getur jafnframt spurt spurninga á nemendasvæðinu. Þegar þú lýkur námskeiðinu færðu sent útskriftarskírteini.
Hvað gildir aðgangurinn lengi?
Ævilangur aðgangur er að námskeiðinu ef þú kaupir það stakt. Ef þú skráir þig í áskrift færðu fullan aðgang að námskeiðinu auk allra annarra námskeiða Frama í eitt ár. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa og hægt er að segja henni upp hvenær sem er.
Get ég fengið styrk frá stéttarfélagi?
Flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Skoðaðu endurgreiðslustefnu stéttarfélaga með því að smella hér.
Ég er með aðra spurningu
Ekkert mál - sendu okkur skilaboð hér á síðunni eða tölvupóst á [email protected] og við svörum um hæl.

Byrjaðu að læra í dag

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]