Kauptu gjafabréf

Gefðu þekkingu sem endist

Skref 1 af 2 Skref 2 af 2

Hvers konar gjafabréf?

Stakt námskeið — 19.900 kr. Áskrift í eitt ár — 29.900 kr.

Við sendum gjafabréfið á þetta netfang

Fæðingarferlið

Vefnámskeið með Kristbjörgu

29 fyrirlestrar | Byrjaðu strax
Frá 19.900 kr.

Hvað færðu út úr námskeiðinu?

Ljósmóðirin Kristbjörg Magnúsdóttir veitir hér hagnýta og trausta fræðslu fyrir verðandi foreldra. Hún fjallar um líkamlegan og andlegan undirbúning, eðlileg viðbrögð líkamans, hormón, óskir í fæðingu, bjargráð, virka fæðingu og fyrstu stundirnar með barninu. Á námskeiðinu fer hún meðal annars yfir:

  • hvernig þú getur undirbúið líkama og huga fyrir fæðingu
  • hvernig líkaminn og hormónin vinna í fæðingu
  • hvernig þú þekkir upphaf fæðingar og veist hvenær á að hafa samband
  • hvernig þú mótar óskir þínar og velur fæðingarstað
  • hvaða verkjalyf og önnur bjargráð standa til boða
  • hvernig öndun, slökun, hreyfing og stellingar geta stutt við fæðinguna
  • hvað gerist þegar barnið fæðist og hvað einkennir gullnu klukkutímana
  • hvað skiptir máli fyrstu klukkustundirnar og dagana með barninu

Kynntu þér innihaldið

Velkomin á námskeiðið

1:29

Líkamlegur undirbúningur fyrir fæðingu

4:16

Andlegur undirbúningur

5:17

Sjónsköpun og tengsl við barnið

2:54

Síðustu vikur meðgöngunnar

5:58

Hvar er best að leita upplýsinga?

2:19

Hvernig líkaminn undirbýr sig fyrir fæðingu og eðlileg viðbrögð líkamans

4:17

Hormónin sem vinna með fæðingunni

5:49

Oxýtósín í fæðingu

2:11

Hvernig fæðing byrjar

7:52

Að þekkja hríðirnar og vita hvenær á að hafa samband

6:01

Val á fæðingarstað

4:00

Þegar barnið er í sitjandi stöðu

2:36

Óskalistinn og hvaða orð notum við?

4:45

Hverjir eru í fæðingarrýminu?

4:47

Verkjalyf í fæðingu

2:57

Hvað er best að gera í upphafi fæðingar?

5:08

Öndun, hljóð og slökun í fæðingu

4:11

Bjargráð án lyfja

4:19

Rebozo í fæðingu

3:09

Virk fæðing, hreyfing og stellingar

8:51

Lok útvíkkunar og rembingsstigið

7:08

Þegar barnið fæðist

6:52

Gullnu klukkutímarnir

4:44

Fylgjan, naflastrengurinn og fyrsta brjóstagjöfin

5:19

Fyrstu klukkustundirnar eftir fæðingu

4:17

Sængurlegan og mikilvægi hvíldar

3:10

Heimaþjónusta ljósmæðra

2:43

Fyrstu dagarnir með nýja barnið

4:28

Kennarinn þinn

Kristbjörg Magnúsdóttir

Kristbjörg Magnúsdóttir

Ljósmóðir

Kristbjörg Magnúsdóttir er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Hún lauk B.Sc. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1995 og útskrifaðist sem ljósmóðir árið 2001.

Kristbjörg starfaði á Hreiðrinu og Fæðingardeild Landspítala á árunum 2001–2010. Hún hefur kennt ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands frá útskrift og sinnt heimafæðingum og mæðravernd frá árinu 2005.

Fáðu aðgang að námskeiðinu

Veldu það sem hentar þér, stakt námskeið eða aðgangur að öllu efni á Frama.

Stakt námskeið

19.900 kr.

Ævilangur aðgangur að þessu námskeiði.

Vinsælast

Áskrift

2.490 kr. á mánuði

Rukkað árlega

Öll námskeið Frama.

Fjölskylduáskrift

2.990 kr. á mánuði

Rukkað árlega

Öll námskeið Frama. Bjóddu fjórum til viðbótar, fimm aðgangar á einu verði.

Mörg stéttarfélög endurgreiða stóran hluta gjaldsins. Sjá nánar

Viltu gefa námskeiðið? Kaupa gjafabréf

Endurgreiðslur eru mismunandi eftir stéttarfélögum og fræðslusjóðum. Finndu þitt stéttarfélag hér að neðan.

Spurt og svarað

Námskeiðið samanstendur af 29 fyrirlestrum sem þú færð aðgang að á nemendasvæði Frama. Þú getur jafnframt spurt spurninga á nemendasvæðinu. Þegar þú lýkur námskeiðinu færðu sent útskriftarskírteini.
Ævilangur aðgangur er að námskeiðinu ef þú kaupir það stakt. Ef þú skráir þig í áskrift færðu fullan aðgang að námskeiðinu auk allra annarra námskeiða Frama í eitt ár. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa og hægt er að segja henni upp hvenær sem er.
Flest stéttarfélög endurgreiða stóran eða allan hluta námskeiðsgjaldsins. Skoðaðu endurgreiðslustefnu stéttarfélaga með því að smella hér.
Ekkert mál – sendu okkur skilaboð hér á síðunni eða tölvupóst á [email protected] og við svörum um hæl.

Fyrirtækið

Frami menntun ehf.

kt. 590219-1420

[email protected]